Trilogy Challenge – Norðurland 2018

Fuzz Frisbígolfverslun og Frisbígolfþjónusta Akureyrar í samstarfi við Domino’s kynna Trilogy Challenge – Norðurland 2018, laugardaginn 30. júní á Hrafnagili.
Spilaðar verða 2×9 holur með breyttum teigum að hluta.
Að fyrri hring loknum verða léttar veitingar í boði Domino’s, áður en seinni 9 holurnar eru spilaðar.

Á mótinu verða fjórir* flokkar:
Opinn flokkur karla (einstaklingskeppni).
Opinn flokkur kvenna (einstaklingskeppni)
Texas Scramble – (byrjendur – 2 saman í liði og betra kastið notað)
Yngri flokkur – (14 ára og yngri – einstaklingskeppni).

*Ef þátttaka er ekki nægileg í öllum flokkum gæti flokka-fyrirkomulag breyst.

Skráningargjaldið er 6.000 kr. fyrir hvern spilara, en innifalið í því eru 3 PDGA-samþykktir diskar, mini marker, stuttermabolur og auðvitað léttar veitingar frá Domino’s.
Spilarar fá þann heiður að vera meðal þeirra allra fyrstu í heiminum til að eignast þessa diska, en diskarnir fara ekki í sölu á almennum markaði fyrr en í lok septembermánaðar.
Þessa diska þurfa spilarar að nota á mótinu og ekki er leyfilegt að nota aðra diska en þá sem spilari fær afhenta á mótsstað.

  • Driver: Latitude 64° – Opto Musket
    •  Speed: 10 | Glide: 5 | Turn: -0.5 | Fade: 2
  • Midrange: Dynamic Discs – Lucid Patrol
    •  Speed: 5 | Glide: 5 | Turn: -3 | Fade: 1
  • Pútter: Westside Discs – Origio Burst Maiden
    • Speed: 3 | Glide: 4 | Turn: 0 | Fade: 1
  • Trilogy Burst mini-marker
  • Trilogy stuttermabolur (stærðir: S-3XL)
  • Skorkort og blýantur

VERÐLAUN

Sigurvegarar í opnum flokki:

  • Sérstakur Trilogy Challenge verðlaunadiskur
  • Trooper bakpoki frá Dynamic Discs
  • 3x diskar frá Trilogy
  • Stálbrúsi frá Latitude 64° (sem heldur heitu eða köldu)
  • Diska-handklæði

Sigurliðið í Texas Scramble:

  • Pro Bag töskur frá Latitude 64°
  • Diskar frá Trilogy
  • Vatnsbrúsar fá Latitude 64°

Sigurvegari í yngri flokk:

  • Easy Go taska frá Latitude 64°
  • Diskar frá Trilogy
  • Vatnsbrúsi fá Latitude 64°

Vinnur þú púttæfingakörfu frá Latitude 64°?


Að móti loknu verður einföld og skemmtileg áskorun þar sem allir keppendur fá eina tilraun til að ná ás á púttæfingakörfu og geta þannig átt möguleika á að vinna ProBasket Skill púttæfingakörfu frá Latitude 64°.
Farið verður betur yfir leikreglurnar á mótsstað.

Við hvetjum þátttakendur eindregið til að fylgjast með tilkynningum varðandi mótið á Facebook viðburði mótsins.

TRYGGIÐ YKKUR þátttöku VIÐ FYRSTA TÆKIFÆRI, því Síðastliðin ár hefur verið uppselt á mótið og færri komist að en vildu.

Diskum og aukahlutum verður útdeilt á mótsdegi frá kl. 10, í þeirri röð sem spilarar greiða skráningargjaldið. Þannig geta spilarar aðeins fengið tilfinningu fyrir diskunum áður en keppnin hefst kl 11:00.

Birt með fyrirvara um breytingar.