Latitude 64° – DG Luxury E3 bakpoki – World Champion Edition

24.000 kr.

Ekki til á lager

Flokkur: Merkimiði:

Lýsing

Sérstök Ricky Wysocki (Sockibomb) heimsmeistara-útgáfa af E3 Luxury Bag bakpokanum sem er framleiddur í takmörkuðu upplagi (500 stk.).
DG Luxury E3 er einn flottasti diska-bakpokinn á markaðnum. Þetta er ný og endurbætt útgáfa af þessum snilldar bakpoka sem sameinar glæsilega hönnun og notagildi.
Bakpokinn tekur 20 diska í aðalhólf ásamt pútter-vasa, en getur tekið allt að 30 diska ef öll hólf eru nýtt undir diska.

Helstu eiginleikar:

– Vasi fyrir drykkjarumbúðir sem heldur allt að 1,5 lítrum.
– Hólf að framanverðu sem hentar vel fyrir handklæði eða hanska.
– Hliðarhólf fyrir lykla, veski og fleira smádót.
– Tvö hliðarhólf, eitt á hvorri hlið fyrir reglubók, sælgæti o.fl.
– Stór hliðarvasi fyrir aftan pútter-vasann, hentugur fyrir varadiska.
– Stór vasi efst fyrir drykki, regnfatnað eða annað sem gott er að hafa með.
– Pútter-hólf á hliðinni með pláss fyrir 2 púttera.
– Vasi fyrir mini-marker framan á pútter-vasa.
– Vasi fyrir tvo diska í lokinu á aðalhólfinu.
– Færanlegt skilrúm í aðalhólfi fyrir diska.
– Regnhlífarhólf.
– Bakpokanum fylgir hlíf sem smellt er yfir töskuna og verndar öll hólf gegn bleytu í rigningu.
– Sérstakur vasi fyrir farsíma í efsta hólfinu.
– Undir botninum er slitsterkt plast sem hjálpar til við að verja töskuna gegn sliti og skemmdum.
– Botninn er varinn með plastfilmu að innan sem hindrar að raki komist inn í töskuna þegar taskan er lögð á jörðina.
– Vandaðir YKK rennilásar.

Það eru engar umsagnir til að sýna