Fuzz Frisbígolfverslun og Frisbígolfþjónusta Akureyrar í samstarfi við Domino’s kynna Trilogy Challenge – Norðurland 2018, laugardaginn 30. júní á Hrafnagili.
Spilaðar verða 2×9 holur með breyttum teigum að hluta.
Að fyrri hring loknum verða léttar veitingar í boði Domino’s, áður en seinni 9 holurnar eru spilaðar.
Á mótinu verða fjórir* flokkar:
Opinn flokkur karla (einstaklingskeppni).
Opinn flokkur kvenna (einstaklingskeppni)
Texas Scramble – (byrjendur – 2 saman í liði og betra kastið notað)
Yngri flokkur – (14 ára og yngri – einstaklingskeppni).
*Ef þátttaka er ekki nægileg í öllum flokkum gæti flokka-fyrirkomulag breyst.
Skráningargjaldið er 6.000 kr. fyrir hvern spilara, en innifalið í því eru 3 PDGA-samþykktir diskar, mini marker, stuttermabolur og auðvitað léttar veitingar frá Domino’s.
Spilarar fá þann heiður að vera meðal þeirra allra fyrstu í heiminum til að eignast þessa diska, en diskarnir fara ekki í sölu á almennum markaði fyrr en í lok septembermánaðar.
Þessa diska þurfa spilarar að nota á mótinu og ekki er leyfilegt að nota aðra diska en þá sem spilari fær afhenta á mótsstað.
- Driver: Latitude 64° – Opto Musket
- Speed: 10 | Glide: 5 | Turn: -0.5 | Fade: 2
- Midrange: Dynamic Discs – Lucid Patrol
- Speed: 5 | Glide: 5 | Turn: -3 | Fade: 1
- Pútter: Westside Discs – Origio Burst Maiden
- Speed: 3 | Glide: 4 | Turn: 0 | Fade: 1
- Trilogy Burst mini-marker
- Trilogy stuttermabolur (stærðir: S-3XL)
- Skorkort og blýantur
VERÐLAUN
Sigurvegarar í opnum flokki:
- Sérstakur Trilogy Challenge verðlaunadiskur
- Trooper bakpoki frá Dynamic Discs
- 3x diskar frá Trilogy
- Stálbrúsi frá Latitude 64° (sem heldur heitu eða köldu)
- Diska-handklæði
Sigurliðið í Texas Scramble:
- Pro Bag töskur frá Latitude 64°
- Diskar frá Trilogy
- Vatnsbrúsar fá Latitude 64°
Sigurvegari í yngri flokk:
- Easy Go taska frá Latitude 64°
- Diskar frá Trilogy
- Vatnsbrúsi fá Latitude 64°
Vinnur þú púttæfingakörfu frá Latitude 64°?
Að móti loknu verður einföld og skemmtileg áskorun þar sem allir keppendur fá eina tilraun til að ná ás á púttæfingakörfu og geta þannig átt möguleika á að vinna ProBasket Skill púttæfingakörfu frá Latitude 64°.
Farið verður betur yfir leikreglurnar á mótsstað.
Við hvetjum þátttakendur eindregið til að fylgjast með tilkynningum varðandi mótið á Facebook viðburði mótsins.
TRYGGIÐ YKKUR þátttöku VIÐ FYRSTA TÆKIFÆRI, því Síðastliðin ár hefur verið uppselt á mótið og færri komist að en vildu.
Diskum og aukahlutum verður útdeilt á mótsdegi frá kl. 10, í þeirri röð sem spilarar greiða skráningargjaldið. Þannig geta spilarar aðeins fengið tilfinningu fyrir diskunum áður en keppnin hefst kl 11:00.
Birt með fyrirvara um breytingar.