Lýsing
Flestir frisbígolfarar kannast við að hafa kastað disknum í vatn einhvern tímann og þurft að vaða eftir honum, með tilheyrandi veseni. Diskaveiðiklóin er komin í sölu hjá Fuzz Frisbígolfverslun til að auðvelda þér að endurheimta diskana þína.
Diskaveiðiklóin nælir í diska á efri og neðri hlutanum þegar hún er dregin í land, sem gerir henni kleift að ná diskum sem hvíla á mismunandi vegu í vatninu. Diskaveiðiklóin hrærir mun minna upp í botninum heldur en sambærilegir diskaveiðarar, þannig að vatnið verður ekki eins gruggugt.
Hægt er að brjóta diskaveiðiklónna saman, þannig að hún taki sem minnst pláss og passar þannig í langflestar töskur. Langi spottinn sem festur er í klónna er með hring á endanum svo að diskaveiðimaðurinn missi ekki takið.
Náðu fleiri diskum til baka á einfaldan og þægilegan hátt, svona græja getur verið mjög fljót að borga sig upp!
Vertu fyrst/ur til að skrifa umsögn “Hive – Disc Claw (Diskaveiðikló)”
Þú verður að skrá þig inn til þess að rita athugasemd.