Lýsing
Voyager bakpokinn er sá fyrsti í nýju bakpokalínunni frá MVP, en von er á fleiri bakpokum frá þeim innan tíðar. Bakpokinn er mjög þægilegur, vel hannaður og allur frágangur er fyrsta flokks.
Hægt er að koma u.þ.b. 20 diskum í bakpokann og hann er með nóg af plássi fyrir allskonar aukahluti, nesti og drykki.
Bakpokinn var hannaður með fjölbreytni í huga og hægt er að haga vösum og uppsetningu eftir því hvað hentar hverju sinni. Tveir D-hringir eru á bakpokanum til að festa töskumerki eða handklæði.
Bakpokinn er framleiddur úr hágæða efni og lítur mjög vel út.
– Vel fóðraðar bakpokaólar ásamt baki sem gefur góðan stuðning og aukin þægindi
– Bakpokinn tekur u.þ.b. 20 diska í heildina
– Aðalhólfið tekur um 18 diska
– Púttervasinn tekur 2 diska
– Stórt geymsluhólf í efri hluta bakpokans
– Hægt að vera með 3 mismunandi útgáfur af efri vösum og púttervasa
– 2 misstjórir renndir vasar
– Ól til að halda regnhlíf eða stól (sjá MVP stólinn)
– 2 stórir og 2 litlir vasar fyrir drykkjarílát
– Vasi fyrir mini-markera
– Renndur skorkortavasi
– Blýantavasi
– Fætur undir bakpokanum eru framleiddir úr slitsterku plasti
– Mjög stöðugur og veltur ekki auðveldlega
Vertu fyrst/ur til að skrifa umsögn “MVP – Voyager bakpoki”
Þú verður að skrá þig inn til þess að rita athugasemd.